Halló , Halló
Ég fæ líka
frí á morgun, trallalalalala laaaa !! Alveg fram á sunnudag..
Vonandi verður gott veður alla helgina!!!
En alla vegana þá
verð ég með smá grill á föstudaginn og ég vona að flestir komast
sem ætla að koma..
Tek samt fram að fólk kemur með
sinn eigin grillmat og
"safa"..
Er síðan að fara að hitta
Birnu Rún á laugardaginn og við ætlum að gera vonandi eitthvað
sniðugt, og kannski Margrét líka, á víst eftir að fá svar frá
henni..
Alla vegana þá fer ég í frí
á morgun, og er komin í frífílingin!!! Vökvaði garðinn og
blómabeðin í gær eftir vinnu, stóð eins og fáviti úti eftir miðnæti
að vökva, þvoði bílinn minn í leiðinni. Það var fínt.. Þarf samt að
fara að bóna hann... Eitthverjir sjálfboðaliðar?? Heiðdís mín, ég
veit að þér langar að bóna litla hvíta snjóboltan....

Ohh, fólk er svo
klikkað....
Vísir, 26. júní. 2007 17:10
Kærður fyrir gervimök við hjólhest
Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir
skrifar:
Skoskur maður hefur verið kærður fyrir að þykjast hafa mök við
reiðhjól.
Robert Stewart er gefið að sök að hafa verið nakinn fyrir neðan
mitti á gistiheimilisherbergi þegar tvær hreingerningakonur komu
inn. Þær sögðust hafa fengið áfall þegar maðurinn blasti við þeim í
ósiðlegum stellingum með hjólhestinum. Hann lét sér hinsvegar
hvergi bregða og hélt hjassinu áfram.
Hann hefur verið kærður fyrir ósæmilega hegðun.
Lögfræðingurinn hans, Gerry Tierney, sagði skjólstæðing sinn neita
sök. Stewart segir málið vera misskilning, meðal annars til kominn
vegna þess að hann hafi drukkið of aðeins of mikið.
Þegar hann var spurður út í hið meinta reiðhjólakynlíf segir Sunday
mail blaðið að Stewart hafi sagt það algjöra þvælu, og spyrja
þyrfti hreingerningarkonurnar um af hverju þær segðu slíkt.
Já ekki er öll vitleysan
eins!!!